Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs skiptir um starf


Stefán Pétursson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Arion
banka. Hann mun taka við nýja starfinu 20. ágúst nk. og mun láta af störfum sem
framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar á sama tíma. 


Hörður Arnarson, forstjóri:

„Stefán hefur starfað hjá Landsvirkjun í rúmlega 18 ár, fyrst sem yfirmaður
lánamála, síðan sem deildarstjóri fjármáladeildar og loks sem framkvæmdastjóri
fjármálsviðs frá árinu 2002.  Þessi tími hefur verið mikið uppbyggingartímabil
í sögu Landsvirkjunar, framleiðslugeta hefur þrefaldast og hefur Stefán gegnt
mikilvægu hlutverki við stjórnun og stefnumörkun fyrirtækisins.  Eru Stefáni
þökkuð farsæl störf í þágu Landsvirkjunar og honum óskað velfarnaðar á nýjum
vettvangi.“