Útboð á ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 1215 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 10 1215: Alls bárust 29 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 34.211 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 20.054 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,45 (flatir vextir 4,68%).