Leiðr: ensk útgáfa leiðrétt, Losses after taxes came to ISK 161 million, en ekki ISK 161 billion +Rekstrarbati á milli ára þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður +Sjóðsstreymi mun sterkara en á síðasta ári Afkoma á öðrum ársfjórðungi 2010 + Heildarvelta var 21,9 milljarðar króna og jókst um 12,2% frá sama tíma í fyrra. + EBITDA var 2,1 milljarður króna en var 1,4 milljarðar króna yfir sama tímabil í fyrra. + EBITDA-hlutfall var 9,8% en var 7,2% á sama tímabili í fyrra. + Afskriftir voru 1,3 milljarðar króna. + EBITDAR-hlutfall var 20,3% en var 20,1% á sama tímabili í fyrra. + Fjármagnskostnaður var 1,1 milljarður króna samanborið við 1,2 milljarða króna árið áður. + Tap eftir skatta var 161 milljón króna en tapið var 1,3 milljarðar króna á sama tíma í fyrra. Afkoma á fyrstu 6 mánuðum 2010 + Heildarvelta var 38,2 milljarðar króna og jókst um 14% á milli ára. + EBITDA var 2,3 milljarðar króna (6,1%) en var 1,5 milljarðar króna (4,4%) árið á undan. + Afskriftir voru 2,6 milljarðar króna sem erhækkun um 220 milljónir frá fyrra ári. + EBITDAR-hlutfall var 17,4% en var 17,2% á sama tímabili í fyrra. + Fjármagnskostnaður var 1,8 milljarðar króna samanborið við 1,7 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. + Handbært fé frá rekstri nam 9,4 milljörðum króna samanborið við 5.0 milljarða á fyrstu sex mánuðum árið áður. + Handbært fé 30. júní nam 7,5 milljörðum króna, en var 6,2 milljarðar á sama tíma í fyrra. + Heildareignir námu 97,8 milljörðum í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall var 13,4% í lok tímabilsins, en var 17,8% á sama tíma í fyrra. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri: „Þrátt fyrir erfið ytri skilyrði jukust heildartekjur félagsins á fyrri hluta ársins umfram framboðsaukningu tímabilsins. Bættur rekstur félagsins endurspeglast í aukningu EBITDA-hagnaðar á fyrri hluta ársins um 862 milljónir króna. EBITDA-hlutfall var 6,1% samanborið við 4,4% fyrstu sex mánuði síðasta árs. Eldsumbrot í Eyjafjallajökli höfðu veruleg áhrif á rekstur eins og félagið hefur áður gefið út. Það er mat okkar að neikvæð áhrif takmarkana á flugumferð séu í kringum 1,5 milljarð króna. Við teljum starfsfólk félagsins hafa sýnt fádæma sveigjanleika og áræðni sem sýnir sig best í því að EBITDA hagnaður af áframhaldandi starfsemi á fyrri hluta ársins er umfram áætlanir þrátt fyrir áhrif gossins. Félagið hefur hækkað EBITDA-spá ársins úr 7,6 milljörðum króna í 8,5 milljarða króna fyrir árið 2010. Tap félagsins á öðrum ársfjórðungi nam 161 milljón króna en tapið nam 1,3 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Tap félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam tveimur milljörðum króna en tapið nam tæpum fimm milljörðum á sama tímabili í fyrra. Í lok júní var lausafjárstaða félagsins ásættanleg en samstæðan átti um 7,5 milljarða króna í handbæru fé. Félagið bindur miklar vonir við „Inspired by Iceland“ átakið sem Icelandair og fleiri aðilar í ferðaþjónustu hófu í samstarfi við stjórnvöld í upphafi sumars. Átakið verður okkur öflugt vopn í þeirri baráttu að auka straum ferðamanna til landsins á vor og haustmánuðum. Heilt á litið er ég bjartsýnn á framtíðarhorfur félagsins og ferðaþjónustunnar í heild. Framundan eru bestu mánuðir ársins í flugrekstri og þjónustu við ferðamenn og félagið væntir þess að uppgjör þriðja ársfjórðungs muni bera þess merki. Í gær náðist stór áfangi fyrir Icelandair Group. Allt frá því í október 2008 hefur félagið unnið að því að endurskipuleggja efnahagsreikning sinn. Nú hafa náðst samningar við helstu lánardrottna og fjárfesta sem fela það í sér að skuldir félagsins munu lækka, greiðslubyrði þeirra lækka og jafnframt kemur til nýtt eigið fé bæði í formi reiðufjár og með breytingu skulda í eigið fé. Í fyrsta sinn í langan tíma er félagið með heilbrigðan og sterkan efnahagsreikning. Ég tel framtíðarhorfur í starfsemi Icelandair Group góðar.“