Vextir Seðlabankans lækkaðir


Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 1
prósentu. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 5,5% og
hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum í 6,75%. Vextir á lánum gegn veði til
sjö daga lækka í 7,0% og daglánavextir í 8,5%.