Útboð á nýjum flokki óverðtryggðra ríkisbréfa, RIKB 12 0824 og verðtryggðum flokki RIKS 21 0414 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 12 0824: Alls bárust 21 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.247 m.kr. að nafnverði. 17 tilboðum var tekið fyrir 6.347 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,09 (4,20% ávöxtunarkröfu). RIKS 21 0414: Alls bárust 29 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.604 m.kr. að nafnverði. 26 tilboðum var tekið fyrir 7.304 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,99 (3,35% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24. ágúst. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 25. ágúst 2010.
Niðurstaða í útboði óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 og RIKS 21 0414
| Source: Ríkissjóður Íslands - Lánamál ríkisins