Marel hf. hefur gert samning við MP banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins á NASDAQ OMX Iceland. MP banki skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð á NASDAQ OMX Iceland í hlutabréf Marel hf. (MARL) að lágmarki 100.000 kr. að nafnvirði á gengi sem MP banki ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem MP banki er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 700.000 að nafnverði. Samningurinn tekur gildi í dag, er ótímabundinn en uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara. Orðið hefur að samkomulagi við Íslandsbanka að viðskiptavakt bankans falli niður frá sama tíma og samningur við MP banka tekur gildi.