Árshlutareikningur Hampiðjunnar hf. fyrir fyrstu 6 mánuði 2010


HAMPIÐJAN

Árshlutareikningur 1.1. - 30.6. 2010

- Rekstrartekjur tímabilsins jukust um 15% og voru EUR 21,7 milljónir (kr. 3,6 
  milljarðar).

- Rekstrarhagnaður var EUR 3,3 milljónir (kr. 545 milljónir), sem var 15% af
  tekjum, en hann var EUR 1,8 milljónir (kr. 299 milljónir) árið áður, sem var
  þá 10% af tekjum.

- Fjárliðir, að meðtaldri hlutdeild í afkomu HB Granda hf., voru á tímabilinu
  EUR 1,3 milljónir til gjalda (kr. 224 milljónir) en voru árið áður EUR 366
  þúsund til tekna kr. 64 milljónir).

- Hagnaður tímabilsins var EUR 1,6 milljónir (kr. 271 milljón) en var árið áður
  EUR 1,9 milljónir (kr. 330 milljónir).


Rekstur fyrri helming ársins 2010

Rekstur samstæðunnar gekk betur fyrri helming ársins en áætlun gerði ráð fyrir. 
Salan jókst í mikilvægum vöruflokkum s.s. í flottrollum og ofurtógi.
Hagræðing í kjölfar sameiningar framleiðslu í Litháen og innlendrar starfsemi
að Skarfabakka skilar sér nú að fullu í rekstri samstæðunnar. 

Fjárliðir voru óhagstæðir vegna gengistaps er varð á tímabilinu vegna lána í
öðrum myntum en evru. Á sama tímabili árið áður var gengishagnaður vegna sömu
lána. Þá var hlutdeild í afkomu HB Granda á tímabilinu til gjalda, en var til
tekna árið áður. 


Efnahagur

Heildareignir voru EUR 81,9 milljónir í lok tímabilsins. Skuldir námu EUR 42,6
milljónum og eigið fé nam EUR 39,3 milljónum, en af þeirri upphæð eru EUR 6,2
milljónir hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga. Hlutfall eigin fjár,
þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin með eigin fé, var í árslok 48% af
heildareignum samstæðunnar. 

Reykjavík 27. ágúst 2010,
Hampiðjan hf.

Árshlutareikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf., www.hampidjan.is

Attachments

hampijan hf. samandreginn arshlutareikningur samstu 30. juni 2010.pdf hampidjan - lykiltolur 30. juni 2010.xls tilkynning fyrir 6man 2010.pdf