Landsvaki - Reikningsskil - Árshlutauppgjör 30.6.2010


Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði
Landsbanks, hefur staðfest árshlutauppgjör félagsins fyrir fyrstu 6 mánuði
ársins 2010. Á fyrri hluta ársins annaðist Landsvaki hf. rekstur 22 sjóða um
sameiginega fjárfestingu samanborið við 21 sjóð í árslok 2009 en á tímabilinu
voru stofnaðir 2 nýir sjóðir og einum sjóði var slitið. Í lok tímabilsins nam
heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 48,2 milljörðum króna. 

Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi.

• Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur  
árshlutareikning   rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur
árshlutareikninga verðbréfa- og fjárfestingasjóða. Þessi framsetning á
reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. 

•  Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af KPMG sem telur ekkert benda
til þess að reikningurinn gefi ekki glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna
á fyrstu sex mánuðum ársins 2010, efnahag þess 30. júní 2010 og breytingu á
handbæru fé og hreinni eign sjóðanna, í samræmi við lög og settar
reikningsskilareglur. 


Eftir að heildareignir í stýringu minnkuðu verulega í kjölfar falls bankanna í
byrjun október 2008 hafa aðstæður breyst til batnaðar. Vextir hafa lækkað,
dregið úr verðbólgu og krónan styrkst. Á fyrri hluta ársins 2010 hefur
ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa farið niður með tilheyrandi verðhækkun á eignum
ríkisskuldabréfasjóða. Raunávöxtun ríkisskuldabréfa hefur einnig verið góð. 
Tap var á rekstri félagsins á tímabilinu að fjárhæð 75 milljónir króna samkvæmt
rekstrarreikningi félagsins og má einkum rekja það til gengisbreytinga. Eigið
fé Landsvaka þann 30.6.2010 nam 248 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
Eiginfjárhlutfall félagsins, reiknað samkvæmt ákvæðum 84.gr. laga um
fjármálafyrirtæki, nam 50,3%. 

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Ari Skúlason,
framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7406.

Attachments

lykiltolur-300610.pdf landsvaki arshlutareikn 30 06 2010 kaupholl.pdf