Undanfarið hefur Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og dótturfélag þess, Farice hf., unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna í samvinnu stærstu kröfuhafa þeirra og hluthafa. Allir aðilar að kyrrstöðusamningi í Eignarhaldsfélaginu Farice ehf. hafa samþykkt framlengingu þess samnings til 1. október n.k. Helstu kröfuhafar dótturfélags Eignarhaldsfélagsins Farice ehf., Farice hf., hafa ekki samþykkt framlengingu á kyrrstöðusamningi Farice hf., en hafa á móti lýst yfir að ekki standi til að gjaldfella lán félagsins auk þess að taka upp viðræður við íslenska ríkið um stöðu félaganna.