Útboð óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 og RIKS 21 0414


Föstudaginn 10. september kl. 11:00 fer fram útboð hjá lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða út bréf í óverðtryggða flokknum RIKB 12 0824 og verðtryggða
flokknum RIKS 21 0414.  Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að
loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum
ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig
tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að
nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 15. september 2010.

Í þessu útboði óskar lánamál ríkisins eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka
ríkisverðbréfa: 

Flokkur	Lokagjalddagi	Útistandandi fjárhæð*	Lánstími
RIKB 12 0824	24.8.2012	6.822 m.kr.	2 ár
RIKS 21 0414	14.4.2021	34.008 m.kr.	11 ár
*að nafnverði

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 14.
september 2010. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði
öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir
þessi viðskipti er 15. september 2010.

Attachments

utbodsskilmalarrikb_riks 100910.pdf frett_rikb_riks_100910.pdf