Útboð á óverðtryggðum flokki ríkisbréfa, RIKB 12 0824 og verðtryggðum flokki RIKS 21 0414 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 12 0824: Alls bárust 17 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.916 m.kr. að nafnverði. 15 tilboðum var tekið fyrir 7.116 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,27 (4,10% ávöxtunarkröfu). RIKS 21 0414: Alls bárust 22 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.872 m.kr. að nafnverði. 21 tilboði var tekið fyrir 5.772 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 111,70 (2,52% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 14. september. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 15. september 2010.
Niðurstaða í útboði óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 og RIKS 21 0414
| Source: Ríkissjóður Íslands - Lánamál ríkisins