Breyting á dagskrá hluthafafundar


Flutningsmaður tillögu um vantraust á endurskoðanda félagsins og tillögu um að
nýr endurskoðandi verði kjörinn hefur dregið hana til baka með eftirfarandi
yfirlýsingu: 

„Undirritaður dregur framkomna tillögu undir liðnum önnur mál á hluthafafundi
Icelandair Group 15. september 2010 til baka. Í ljósi þess að nýir eigendur
eru komnir að félaginu og fjárhagslegri endurskipulagningu að mestu lokið telur
undirritaður að frekari umfjöllun um framkomna tillögu ekki til þess fallna að
þjóna hagsmunum félagsins og hluthöfum þess á þessum tíma. Í ljósi þessa dregur
undirritaður tillögu sína til baka. 

Vilhjálmur Bjarnason
Hluthafi“

Endanleg dagskrá er því svo:
1.  Kjör stjórnar og varastjórnar skv. 5. gr. samþykkta félagsins