Landsvirkjun og Alcan á Íslandi hf. hafa uppfyllt eða fallið frá fyrirvörum við samning um raforkusölu til álversins í Straumsvík. Samningurinn var undirritaður 15. júní síðastliðinn með tilteknum fyrirvörum. Allir fyrirvarar hafa nú verið uppfylltir, og tekur samningurinn gildi 1.október 2010. Samningurinn er tvíþættur. Annars vegar er endursamið um verð á núverandi orkusölu til álversins (2.932 GWst) og hins vegar er samið um afhendingu viðbótar orku (658 GWst) vegna áætlaðrar framleiðsluaukningar álversins. Nýtt raforkuverð tekur gildi 1. október 2010. Verðið er í bandaríkjadölum, verðbætt miðað við bandaríska neysluvísitölu og er álverðstenging afnumin. Samningurinn gildir til ársins 2036 sem er tæplega tólf ára framlenging frá núverandi samningi. Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar: „Þessi samningur er fyrsta skrefið í stefnu Landsvirkjunar að tengja verðþróun á raforku hérlendis við þróun á alþjóðlegum mörkuðum. Miðað við núverandi álverð skilar samningurinn umtalsverðri hækkun á raforkuverði fyrir Landsvirkjun.“ Nánari upplýsingar veitir: Ragna Sara Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar sara@lv.is 515 9000 / 849 2122