Árshlutauppgjör fyrstu 6 mánuði ársins liggur fyrir og er rekstrarniðurstaða jákvæð um 26 milljónir en áætlanir gerðu ráð fyrir um 102 milljón króna taprekstri á árinu. Helstu ástæður þess eru þær að fjármagn sliðir hafa jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu um tæpar 84 milljónir króna á fyrstu 6 mánuðum ársins. Jákvæð niðurstaða fjármagnsliða stafar af gengishagnaði skulda. Skatttekjur námu 619 millj.kr. en ársáætlun nam 1.347 millj.kr. og eru því lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Laun- og launatengd gjöld námu 451 millj.kr. og eru hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir en megin skýringin er sú að þær hagræðingaraðgerðir sem farið hefur verið hafa ekki áhrif fyrr en seinnihluta ársins. Annar rekstrarkostnaður er um 164 m.kr. en áætlanir gera ráð fyrir 371 m.kr. á árinu 2010. Veltufé til rekstrar er 138 m.kr en handbært fé frá rekstri er rúmar 44 m.kr. Heildareignir í lok júní eru 4.318 m.kr. en skuldir samtals eru 5.679 m.kr. Eigið fé er neikvætt upp á 1.362 m.kr. Skuldbindingar utan efnahags eru 1.194 m.kr. Í upphafi árs breytti sveitarfélagið reikningsskila aðferðum sínum í samræmi við álit Reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga 1/2010 um færslu leigusamninga fasteigna og annarra mannvirkja í bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga. Innleiðing álitsins fól í sér breytingu á reikningsskilaðferðum sveitarfélagsins þar sem það færir nú til eignar meðal varanlegra rekstrarfjármuna fasteignir og önnur mannvirki sem það hefur leigt til sín samkvæmt leigusamningum til lengri tíma en þriggja ára og skuldbindingu vegna leigusamning meðal langtímaskulda. Upptaka reikningsskilaaðferðar miðaðist við 1.janúar 2010 og felur í sér afturvirka beitingu reikningsskilaaðferðar á þann hátt að bókfært verð eigna og skulda færðra í efnahag vegna innleiðinga reikningsskilaaðferðar miðast við að reikningsskilaaðferð hafi verið beitt frá samningsdegi. Til samræmis við álitið eru áhrif innleiðingar reikningaskila aðferðarinnar færð á eiginfjárreikning 1. Janúar 2010 og lækkaði eigið fé sveitarfélagsins um 867,3 millj.kr. vegna þessa. Könnunaráritun endurskoðenda er með fyrirvara og þar segir m.a.: . Eins og fram kemur í skýrslu stjórnar og skýringu 39 með ársreikningnum á sveitarfélagið í miklum greiðsluerfiðleikum. Bæjarstjórn Álftaness sendi eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) tilkynningu, í nóvember sl., þess efnis að sveitarfélagið væri komið í fjárþröng og að bæjarstjórn teldi sér eigi unnt að standa í skilum. Að tillögu EFS skipaði ráðherra sveitarfélaginu fjárhaldsstjórn þann 8.febrúar sl. með skipunartíma til 1.nóvember 2010. Fjárhaldsstjórn tók við stjórn fjármála sveitarfélagsins og er bæjarstjórn óheimilt að inna greiðslur af hendi úr bæjarsjóði án samþykkis hennar. Því ríkir veruleg óvissa um áframhaldandi rekstrarhæfi sveitarfélagsins.