Landsvirkjun kaupir hlut Orkuveitu Húsavíkur í Þeistareykjum


Landsvirkjun og Orkuveita Húsvíkur ehf. hafa náð samkomulagi um kaup
Landsvirkjunar á 28,771% hlut Orkuveitu Húsavíkur ehf.  í hlutafélaginu
Þeistareykjum ehf. 

Eftir kaupin á Landsvirkjun tæplega 93% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru
Orkuveita Húsavíkur (3,2%) og Þingeyjarsveit (4,09%). 

Fyrir hlutinn eru greiddar tæpar 14 milljónir bandaríkjadollara. Greitt er í
áföngum þar til orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja ehf. 

Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum
jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest
verulega í rannsóknum og öðrum verkefnum því tengdu. Boraðar hafa verið sex
djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum
árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW
raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til
viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri
jarðhitakerfum Íslands. 

Háhitasvæðin á Norðausturlandi gegna lykilhlutverki í frekari uppbyggingu
raforkuvinnslu á Íslandi. Orkuveita Húsavíkur ehf. hefur með þátttöku sinni í
Þeistareykjum ehf. gegnt mikilvægu hlutverki við undirbúning orkuvinnslu á
svæðinu og mun sem minni hluthafi halda þeirri uppbyggingu áfram. Þessi kaup
gera Landsvirkjun enn betur í stakk búna að vinna að frekari uppbyggingu á
þessu svæði í tengslum við aðra orkukosti fyrirtækisins. 

Samhliða kaupunum hafa Norðurþing og Landsvirkjun gert með sér samstafssamning
um nýtingu raforku á umráðasvæði Þeistareykja ehf. Eru aðilar sammála um að
stuðlað verði að því sem kostur er að áhugasamir orkukaupendur hefji orkufreka
starfsemi í Þingeyjarsýslum og orkukaup frá Þeistareykjum ehf. og Landsvirkjun
eftir atvikum. 

Frekari upplýsingar veita Bergur Elías Ágústsson stjórnarformaður Orkuveitu
Húsavíkur í síma 464-6100 og Ragna Sara Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs
Landsvirkjunar í síma 515-9000 eða 849-2122. 

Reykjavík, 29. september 2010