Niðurstaða í útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824


Útboð á óverðtryggðum flokki ríkisbréfa, RIKB 12 0824 fór fram hjá Lánamálum
ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð
buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði
söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.060 m.kr. að nafnverði. 6
tilboðum var tekið fyrir 1.460 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,90 (4,30%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12.
október. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 13. október 2010

Attachments

nidurstodurrikb_101008.pdf