Matsfyrirtækið Standard og Poor‘s (S&P) hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr BB (neikvæðar horfur) í BB+ (neikvæðar horfur). Í fréttatilkynningu frá Standard og Poor‘s kemur fram að hækkun lánshæfiseinkunnar Landsvirkjunar stafi einkum af breyttum áherslum í rekstri fyrirtækisins og því að markvisst sé unnið að því að draga úr áhættu í rekstri. Í tilkynningu Standard og Poor‘s segir að rekstraráhætta Landsvirkjunar hafi minnkað með því að dregið hafi verið úr tengingu tekna við álverð, sem dragi úr áhættu í rekstri. Lausafjárstaða fyrirtækisins hafi styrkst með auknu aðgengi að fjármagni og hefur ekki lengur áhrif á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar. Afkoma á fyrri hluta ársins 2010 gefur til kynna að búast megi við að afkoma fyrirtækisins batni enn frekar á komandi árum. Þá telur S&P það jákvæða þróun að Landsvirkjun leggi nú aukna áherslu á arðsemi í stefnu sinni. Að lokum er bent á að neikvæðar horfur í einkunn Landsvirkjunar byggi á neikvæðum horfum á lánshæfismati íslenska ríkisins. Nánari upplýsingar veitir: Ragna Sara Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar sara@lv.is 515 9000 / 849 2122