Uppgjör Össurar - þriðji ársfjórðungur 2010


Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 20/2010
Reykjavík, 25.október 2010


GÓÐUR ÁRANGUR

Sala - Söluvöxtur á þriðja ársfjórðungi var 7% mælt í staðbundinni mynt. Salan nam alls 87 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 84 milljón dala á þriðja ársfjórðungi í fyrra. Góð Söluaukning var á spelkum og stuðningsvörum eða um 12%, mælt í staðbundinni mynt. Sala á stoðtækjum jókst um 3%, mælt í staðbundinni mynt.

Arðsemi - EBITDA framlegð nam 19 milljónum Bandaríkjadala eða 22% af sölu. Framlegð nam 54 milljónum dala eða 62% af sölu. Framlegð er áfram stöðug. Hagnaður á tímabilinu nam 4 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 5 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Neikvæð gengisáhrif á fjármagnsliði höfðu töluverð áhrif á hagnað.

Jón Sigurðsson, forstjóri:

"Sala á spelkum og stuðningsvörum heldur áfram að vera góð og þá sérstaklega í Bandaríkjunum. Mikið af nýjum vörum hefur komið út á árinu og við erum ánægð með að nýjar spelkur og stuðningsvörur hafa jákvæð áhrif á söluvöxt á fjórðungnum. Meðal nýrra vara sem voru kynntar á fjórðungnum er PROPRIO FOOT sem er önnur varan í Bionic vörulínu Össurar. Bionic vörulínan hefur skapað spennu og eftirvæntingu á markaðnum og erum við  staðföst í að þróa þessa vörulínu enn frekar."

Helstu áfangar á fjórðungnum:

  • PROPRIO - Á fjórðungnum var gerviökklinn Proprio settur á markað. Proprio er önnur varan í Bionic vörulínunni sem er kynnt á markaðinum. Proprio er fyrsta vara sinnar tegundar og því þarf Össur að ryðja veginn og undirbúa markaðinn. Sala á Proprio á þriðja og fjórða ársfjórðungi þessa árs mun ekki hafa veruleg áhrif á heildarsölu félagsins.
  • Spelkur og stuðningsvörur - Söluvöxtur á spelkum og stuðningsvörum hefur verið yfir markaðsvexti. Jákvæð merki um vöxt í Bandaríkjunum staðfesta að aukin fjárfesting í sölukerfi í Bandaríkjunum er að skila sér. Nýjar spelkur og stuðningsvörur, eins og Miami Lumbar og Rebound Walker, hefur verið vel tekið og hafa jákvæð áhrif á vöxt.

 

Áætlun - Stjórnendur gera ráð fyrir að söluaukning verði í takt við upprunalegu áætlun félagsins, sem gerir ráð fyrir 4-6% innri vexti á árinu, mælt í staðbundinni mynt. Nú er gert ráð fyrir 5-7% innri EBITDA vexti, mælt í staðbundinni mynt.


Símafundur þriðjudaginn 26. október kl. 10:00

Á morgun  þriðjudaginn 26. október, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta, hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður 3. ársfjórðungs 2010. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors

Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660

Nánari upplýsingar:  
   
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill    sími: 664-1044

 

Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors


Attachments

Ossur Press Release Q3 2010 English Ossur Financial Statements 30.9.2010 Q3 2010 Investor Presentation