Breyting á aðalmiðlarasamningum


Aðalmiðlarar og lánamál ríkisins hafa ákveðið að framlengja tímabundna
breytingu á 3. gr. samnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og
viðskiptavakt á eftirmarkaði dags. 14. maí 2010. 

Til og með 2. desember 2010 verður hámarksmunur kaup- og sölutilboða fyrir RIKB
19 0226 og RIKB 25 0612 eftirfarandi: 

Bréf	    Hámarksmunur
RIKB 19 0226	0,60%
RIKB 25 0612	1,20%

Breytingin er gerð til þess að auðvelda viðskiptavökum að sinna vakt með
framangreinda flokka á eftirmarkaði. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.

Attachments

aukning a verbili framlengt .pdf