Útboð ríkisvíxla RIKV 11 0315


Fimmtudaginn 11. nóvember kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokki RIKV 11 0315 sem er með gjalddaga 15. mars 2011. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 15. nóvember 2010.

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX á Íslandi þriðjudaginn 16.
nóvember 2010. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins, í síma 569
9633. 

Attachments

utbodsskilmalar_rikv110315_101108.pdf frett_rikv110315_101108.pdf