Össur óskar eftir afskráningu úr kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi - Áhersla á skráninguna í Kaupmannahöfn


                                     Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 22/2010
                                                    Reykjavík, 15. nóvember 2010



         Össur óskar eftir afskráningu úr kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi

                     Áhersla á skráninguna í Kaupmannahöfn



Hlutabréf   Össurar  hf.  eru  nú  til  viðskipta  í  kauphöllum  NASDAQ  OMX  í
Kaupmannahöfn og á Íslandi. Stjórn Össurar ákvað í dag að óska eftir afskráningu
félagsins  úr  kauphöll  NASDAQ  OMX  á  Íslandi.  Félagið  mun leggja áherslu á
skráninguna í Kaupmannahöfn.


Jón  Sigurðsson,  forstjóri  Össurar  hf.:  "Össur  hefur verið skráð á íslenska
hlutabréfamarkaðnum  frá 1999 og  hefur skráningin  gegnt veigamiklu hlutverki í
vexti  félagsins. Í ljósi þeirra breytinga  sem orðið hafa í viðskiptaumhverfinu
og  á félaginu  sjálfu á  undanförnum árum  er eðlilegt  að stíga þetta skref og
leggja   áherslu   á  hlutabréfamarkað  sem  getur  stutt  við  fyrirætlanir  um
framtíðarvöxt félagsins. Ég vil undirstrika að þessi ákvörðun hefur aðeins áhrif
á  skráningu félagsins á  hlutabréfamarkað. Starfsemin á  Íslandi hefur verið að
aukast og við eigum ekki von á breytingu þar á."

Össur  hefur verið skráð í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn síðan í september
2009. Þar  hefur félagið aðgang að alþjóðlegum fjárfestum á virtum markaði fyrir
fyrirtæki  á  heilbrigðissviði.  Um  64% af  hlutabréfum  félagsins  eru  nú til
viðskipta á danska markaðnum.

Hluthafar  þurfa ekki  að grípa  til neinna  ráðstafana vegna  þessarar óskar um
afskráningu.

Afskráningarbeiðnin  verður  send  án  tafar  til  NASDAQ OMX á Íslandi. Frekari
upplýsingar verða birtar þegar afstaða hefur verið tekin til beiðni félagsins.

Nánari upplýsingar:
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími: 664 1003
Tilkynningar frá Össuri með tölvupósti:

Ef þú hefur áhuga á að fá sendar tilkynningar frá Össuri, vinsamlega skráður þig
á heimasíðu Össurar: http://www.ossur.com/investormailings.



[HUG#1462662]