Niðurstaða í útiboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 og RIKB 16 1013


Útboð á óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 12 0824 og RIKB 16 1013 fór fram
hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll
samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 14.580 m.kr. að nafnverði. 1
tilboði var tekið fyrir 8.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,56 (3,90%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 16 1013:
Alls bárust 21 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.756 m.kr. að nafnverði. 17
tilboðum var tekið fyrir 5.126 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,70 (5,65%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 23.
nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 24. nóvember 2010. 

Attachments

nidurstodurrikb_101119.pdf