Skuldir Kópavogs lækka

Fjárhagsáætlun 2011


Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2011 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Tíu af ellefu bæjarfulltrúum standa að henni og var hún unnin í nánu samráði við nefndir og ráð bæjarins. Við vinnslu hennar var auk þess kallað eftir sjónarmiðum bæjarstarfsmanna og bæjarbúa. Með því er lögð áhersla á að allir Kópavogsbúar geti tekið þátt í stefnumótun bæjarins.

Fjárhagsáætlun ársins 2011 ber þess merki að árferðið er erfitt. Skuldir bæjarins eru miklar og brýnt að hagræða og forgangsraða í rekstri og greiða niður skuldir.

Höfuðáhersla er lögð á að verja grunnþjónustuna; leikskólana, skólana og félagsþjónustuna. Þetta þýðir að tímabundið mun þrengja að rekstri annarra málaflokka og ekki verður hjá því komist að hækka gjaldskrár.

Verulega er dregið saman í yfirstjórn bæjarins m.a. með skipulagsbreytingum í stjórnsýslu, sameiningu nefnda og fækkun funda.

Miðað er við að útsvar fyrir árið 2011 verði óbreytt og að fasteignaskattur breytist til samræmis við verðlagsþróun. Holræsagjöld, vatnsgjöld og sorphirðugjöld hækka til að mæta auknum kostnaði.

Punktar úr fjárhagsáætluninni:

  • Stefnt að því að greiða inn á skuldir bæjarsjóðs um milljarð á ári næstu árin.
  • Áætlað að rekstrarafgangur samstæðureiknings verði um 103 milljónir.
  • Veltufjárhlutfallið styrkist og verður 0,88.
  • Veltufé frá rekstri verður rúmir 2 milljarðar.
  • Áætlað að hagræða í rekstri mötuneyta í grunnskólum bæjarins.
  • Stefnt að því að hagræða í skólaakstri og er útboð fyrirhugað í vor.
  • Leikskólagjöld hækka en verða áfram með þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu.
  • Ýmsir kostnaðarliðir hækka til að standa undir auknum rekstrarkostnaði.
  • Rekstrarsamningar við íþróttafélögin verða teknir til endurskoðunar.

         Nánari upplýsingar:
         Arna Schram, forstöðumaður almannatengsla, sími: 6960663


Attachments

KOP-fjarhagsatlun-2011-14-des.pdf