Icelandair Group hf. - viðauki við lýsingu


Meðfylgjandi er Icelandair Group viðauki við lýsingu dagsett 7. desember 2010. Lýsing Icelandair Group samanstendur af útgefandalýsingu dagsettri 28. október 2010 og verðbréfalýsingu og samantekt dagsettum 7. desember 2010.

Fyrirvari:

Icelandair Group hf. („félagið“) vill vekja athygli á skilmálum í almenna útboði („útboðið“) félagsins sem hófst 8. desember 2010 kl. 10.00 og lýkur 23. desember 2010 kl. 16.00. Eins og fram kemur í verðbréfalýsingu dagsettri 7. desember 2010 þá er útboðinu beint til aðila sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Núverandi hluthafar félagsins úr hluthafaskrá 17. nóvember 2010 skv. Verðbréfaskráningu Íslands. Bréf í félaginu sem voru keypt frá og með 15. nóvember njóta ekki forgangsréttar.
  2. Allir starfsmenn félagsins ásamt dótturfélögum þess, að undanskildum Bluebird Cargo ehf. og SmartLynx AOC, sem voru starfandi hjá félögunum þann 31. október 2010.
  3. Almenningi og fyrirtækjum á Íslandi.


Útboðið, eins og því er lýst í verðbréfalýsingu félagsins, mun vera í formi almenns útboðs í skilningi 43. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Útboðið mun eingöngu eiga sér stað á Íslandi.

Eitt af meginskilyrðum útboðsins er að einstaklingar eða lögaðilar sem ætla sér að taka þátt í útboðinu uppfylli ofangreind skilyrði og hafi íslenska kennitölu.

Þeir sem ætla að skrá sig fyrir nýjum hlutum í útboði félagsins eru hvattir til að kynna sér vandlega Lýsingu Icelandair Group sem samanstendur af útgefandalýsingu dagsettri 28. október 2010 ásamt samantekt og verðbréfalýsingu dagsettum 7. desember 2010.

Þessi fyrirvari er gerður í samræmi við 2. mgr. 29. gr. reglugerð framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins nr. 809/2004.

Icelandair Group hf. vill vekja athygli á því að misritun átti sér stað í tilkynningu félagsins varðandi skilmála útboðsins sem birtist þann 7. desember 2010. Í lið 1 í tilkynningunni kom fram að þau hlutabréf sem voru keypt eftir 15. nóvember njóta ekki forgangsréttar. Setning átti að segja að þau hlutabréf sem voru keypt frá og með 15. nóvember njóta ekki forgangsréttar.


Attachments

2010 12 17 Supplement.pdf