Friðrik Þór Snorrason lætur af starfi framkvæmdastjóra Skyggnis ehf.


Friðrik Þór Snorrason framkvæmdastjóri Skyggnis, sem er rekstrar- og hýsingarþjónustufyrirtæki Nýherjasamstæðunnar, hefur tekið að sér starf forstjóra Reiknistofu bankanna (RB). Friðrik hefur störf hjá RB þann 25. febrúar næstkomandi.

Friðrik hefur starfað hjá Nýherjasamstæðunni frá því árið 2003, fyrst sem markaðsstjóri, en tók svo við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar Nýherja hf. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Skyggnis árið 2008.


Attachments

Microsoft Word - Fririk or Snorrason Skyggni ehf. 8.2.2011.pdf