Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824


Föstudaginn 18. febrúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi.

Boðin verða til sölu bréf í tveggja ára flokknum RIKB 12 0824.  Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 23. febrúar 2011.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 22. febrúar 2011. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni.

Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 23. febrúar 2011.


Attachments

Frett_RIKB12_110215.pdf UtbodsskilmalarRIKB12_110215.pdf