Þriggja mínútna þögn í viðskiptakerfinu


NASDAQ OMX kauphöllin á Íslandi mun heiðra minningu Þórðar Friðjónssonar, fyrrverandi forstjóra Kauphallarinnar, með þriggja mínútna þögn á mörkuðum Kauphallarinnar í dag, mánudaginn 21. febrúar kl. 13.00. Viðskiptakerfinu verður ekki lokað en kauphallaraðilar eru vinsamlegast beðnir um að virða þessa þögn.