Dagskrá og tillögur aðalfundar sem haldinn verður 25. mars 2011 og hefst kl. 15:00


Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 25. mars 2011 á Goðalandi  Fljótshlíð og hefst kl. 15:00

Dagskrá:

 

  1. Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.  
  2. Skýrsla stjórnar félagsins.
  3. Starfsemi félagsins á liðnu ári.
  4. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.
  5. Skýrsla skoðunarmanna.
  6. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
  7. Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögu stjórnar um vexti og arð af stofnsjóði.
  8. Afgreiðsla ársreiknings og tillögu stjórnar um vexti og arð af stofnsjóði.
  9. Kosin stjórn félagsins.
  10. Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.
  11. Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.
  12. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.


Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.

Tillögur:

Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að hvorki verði greiddur arður af B-deild stofnsjóðs né reiknaðir vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs. 

 

 

 


Attachments

SS aalfundarauglysing 2011.pdf