Aðalfundur RARIK ohf verður haldinn að Hótel Örk í Hveragerði föstudaginn 25 mars 2011 kl 14:00.
Dagskrá samkvæmt samþykktum RARIK ohf.:
1. Setning og ávarp stjórnarformanns.
2. Skýrsla stjórnar félagsins.
3. Staðfesting efnahagsreiknings og rekstrarreiknings fyrir næstliðið rekstrarár.
4. Breytingar á samþykktum félagsins.
5. Starfskjarastefna.
6. Tillaga um arðgreiðslu
7. Kosning stjórnarmanna.
8. Kosning endurskoðanda.
9. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna fyrir störf þeirra á næstliðnu starfsári.
10. Önnur mál.