Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824


Útboð á óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 12 0824 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.150 m.kr. að nafnverði. 4 tilboðum var tekið fyrir 2.550 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,65 (3,04% ávöxtunarkröfu).


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 22. mars. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 23. mars 2011.


Attachments

NidurstodurRIKB12_110318.pdf