Ársreikningar Akureyrarbæjar 2010

Góð afkoma og skuldir lækka


Rekstur Akureyrarbæjar, fyrir fjármagnsliði, gekk vel árið 2010 og betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sjóðsstreymi var einnig ágætt. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.406 millj.kr. en var jákvæð um 1.675 millj. kr. eftir fjármagnsliði. Er það liðlega 600 milljóna króna  betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir en í áætlun samstæðunnar var jákvæð afkoma áætluð 1.075 millj.kr. Helstu ástæður betri rekstrarárangurs eru hærri tekjur og lægri fjármagnskostnaður en áætlun gerði ráð fyrir. Heildarskuldir lækka um 1.152 milljónir króna frá fyrra ári.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar í dag og við síðari umræðu þann 19. apríl nk.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, framkvæmdamiðstöð og eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf, Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 2.256 millj.kr. og handbært fé frá rekstri 2.163 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals 1.441 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals - 356 millj.kr. Afborgun langtímalána nam 2.555 millj.kr. Ný langtímalán námu 2.171 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok nam 2.586 millj.kr.

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 6.434.525 þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.515 sem er óbreytt frá fyrra ári. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 53,1%. Annar rekstrarkostnaður var 30,7% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 414 þús.kr. á hvern íbúa en heildartekjur samtals 887 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2009 voru skatttekjurnar 412 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 855 þús.kr.

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 36.783 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 4.161 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi 22.367 millj.kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.187 millj.kr. Heildarskuldir í árslok 2009 námu samtals 23.520 milljónum króna. Veltufjárhlutfallið er 1,31 í árslok, en var 0,94 árið áður. Bókfært eigið fé nemur 14.416 millj.kr í árslok en nam árið áður 12.531 millj. kr. Eiginfjárhlutfall í árslok var 39%.

Sjá lykiltölur í viðhengi.

 

 

 

         Nánari upplýsingar veitir:
         Dan Brynjarsson, Fjármálastjóri, í síma 460 1000.


Attachments

Arsreikningur - Akureyrarbjar 2010.pdf Akureyrarbr - Frettatilkynning.pdf