Óbreytt mat Reitunar á lánshæfi Orkuveitu Reykjavíkur


Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. birti í dag uppfært lánshæfismat fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Einkunnin er B+ með stöðugum horfum.

Einkunnagjöf Reitunar er lítillega frábrugðin þeirri aðferðafræði sem almennt þekkist. Ríkissjóður myndar grunn að einkunn til viðmiðunar við útgefendur. Einkunnaflokkar eru A,B,C og D. Undirflokkar eru +,0,-. Samtals eru 12 flokkar. Til viðbótar er tilgreint hvort horfur séu jákvæðar, stöðugar eða neikvæðar.

Orkuveita Reykjavíkur gerði samning við Reitun s.l. haust um greiningu og mat á lánshæfi fyrirtækisins gagnvart fjárfestum á skuldabréfamarkaði. Markmiðið er að gera fjárfestum kleift að fá álit óháðra aðila á fjármálum fyrirtækisins. Reitun er dótturfélag IFS Greiningar og var stofnað fyrr á þessu ári.

Í mati Reitunar um Orkuveitu Reykjavíkur segir: „Stjórnendur OR hafa þurft að grípa til enn frekari aðgerða vegna fjármögnunarvanda fyrirtækisins. Í byrjun árs var orðið ljóst að lánsfjármögnun erlendis var ekki í boði og reyndi því á eigendur að styðja við félagið. Nú hafa verið settar fram nýjar áætlanir til ársins 2016 sem ekki gera ráð fyrir erlendri fjármögnun. OR fær 12 ma. kr. eigendalán, hagrætt verður enn frekar í rekstri, gjaldskrár hækkaðar, auk þess sem eignir verða seldar til að mæta afborgunum lána næstu sex ára. Gert er ráð fyrir að skuldir greiðist niður um 87,2 ma. kr. á tímabilinu, eða sem svarar 39% vaxtaberandi skulda OR í lok árs 2010. Verulega hefur því verið dregið úr endurfjármögnunaráhættu, en eftir stendur að áætluð eignasala er ekki í hendi. Gengislækkun krónunnar næstu misserin getur einnig sett strik í reikninginn og kallað á frekari hagræðingu, gjaldskrárhækkanir og frestun framkvæmda. Að teknu tilliti til bakábyrgðar Reykjavíkurborgar leiddi uppfært mat okkar til óbreytts lánshæfis OR í flokki B+ með stöðugum horfum.“

„Standist fyrirliggjandi fjárhagsáætlun, og þá sérstaklega m.t.t. áætlaðs sjóðstreymis af eignasölu, og gangi lækkun skulda eftir, mun það leiða til hækkunar lánshæfis. Ytri þættir, s.s. styrking krónunnar, lægri vextir, og batnandi fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar myndu að öllum líkindum einnig hafa áhrif til hækkunar.

Verulegar vaxtahækkanir á lánasafnið, fjárfestingarþörf umfram áætlun án nýrra verkefna, og frekari gengislækkun íslensku krónunnar hefðu að öllum líkindum áhrif til lækkunar lánshæfismats að öðru óbreyttu.“


Attachments

2011_04_OR_Reitun_uppfaert_mat.pdf