Útboð ríkisvíxla RIKV 11 0715 og RIKV 11 1017


Miðvikudaginn 13. apríl kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 11 0715 og RIKV 11 1017 sem eru með gjalddaga 15. júlí og 17. október 2011.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagur 15. apríl 2011.

Ofangreindir flokkar verða skráðir í NASDAQ OMX á Íslandi mánudaginn 18. apríl 2011.


Attachments

Frett_RIKV11_110411.pdf Utbodsskilmalar_RIKV11_110411.pdf