Útboð RVK 09 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs þann 13. apríl 2011 til stækkunar á skuldabréfaflokki með auðkennið RVK 09 1.

Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 1.000 milljónir króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.
 
Heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð nemur alls 10.720 m.kr. að nafnvirði. Heimild til stækkunar á árinu 2011 er 6.300 m.kr. að nafnvirði. Flokkurinn hefur verið stækkaður um 1.390 m.kr. það sem af er árinu 2011.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 18. apríl 2011.
 
Umsjón með sölu skuldabréfanna hafa Íslandsbanki og MP banki.
 
Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:
 
Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321


Attachments

Utbo RVK 09 1 - 13 april 2011.pdf utgafulysing-rvk-09-1.pdf Utbosskilmalar RVK 09 1 - 13 april 2011.pdf