Í dag greiðir Eyrir Invest skuldabréf í flokkinum EYRI 07 2, sem eru á gjalddaga 20. apríl 2011. Um er að ræða óskráðan flokk skuldabréfa sem gefin eru út í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf.
EYRI 07 2 hefur ISIN númerið IS0000015329. Greiðslufjárhæðin er um 3.150 milljónir króna
Eyrir gefur út í dag nýjan flokk skuldabréfa, EYRI 11 1. Markmiðið er að gefa út skuldabréf í flokknum fyrir allt að 4 milljarða króna, en í dag eru gefin út skuldabréfa að fjárhæð 1.012 milljónir króna.
Gjalddagi hinna nýju skuldabréfa er 15. maí 2014. Vaxtagjalddagar eru á 12 mánaða fresti og er fyrsti vaxtagjalddaginn 15. maí 2012. Hin nýju skuldabréf skulu bera REIBOR vexti að viðbættu 500 punkta álagi. Sérstök skilyrði samkvæmt hinum nýju skuldabréfum eru 25% eiginfjárhlutfall og skuldbinding um að greiða ekki arð sem nemur meira en 50% af hagnaði hvers árs. Eyrir Invest mun sækja um skráningu á hinum nýju skuldabréfum í Kauphöll Íslands fyrir árslok 2011 til viðbótar við þann flokk skuldabréfa félagsins sem þegar er skráður, EYRI 05 1. Hin nýju skuldabréf eru útgefin rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf.
H.F. Verðbréf hf. höfðu umsjón með útgáfu og sölu hinna nýju skuldabréfa.
Eyrir Invest er alþjóðlegt fjárfestingafélag sem leggur áherslu á iðnfyrirtæki sem eiga möguleika á skara framúr á alþjóða vettvangi. Eyrir Invest fjármagnar fjárfestingastarfsemi sína með hlutafé og langtímalánum. Heildareignir eru EUR 426 milljónir í árslok 2010 og eiginfjárhlutfallið 44%. Eyrir Invest var stofnað um mitt ár 2000. www.eyrir.is