Ársreikningur Rangáþings ytra fyrir árið 2010


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2010 var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar fimmtudaginn 28. apríl 2010 og vísað til seinni umræðu en samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikning sveitarfélags á tveimur fundum í sveitarstjórn.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikninga fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekin ársreikning fyrir alla starfsemi þess það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr. 45/1998.

Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustustöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s og Suðurlandsvegur 1-3 ehf.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2010 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.015,0 millj. kr. samanborið við 971,1 millj. kr. árið 2009. Hækkun milli ára er 4,5%.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 928,5 millj.kr., en voru 984,9 millj. kr. á árinu 2009. Lækkun frá fyrra ári nemur 5,7%.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2011 námu 83,7 millj. kr. samanborið við 118,5 millj. kr.árið 2009. Lækkun fjármagnsgjalda umfram fjármunatekjur milli ára skýrist af hagstæðari þróun gengis og verðlags á árinu 2010 samanborið við árið 2009.

Rekstrarniðurstaða ársins er því jákvæð um 5,0 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við neikvæða rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 130,7 millj. kr. á árinu 2009.

 

Frekar upplýsingar veita:

Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri, gunnsteinn@rang.is og í síma 488-7000
Indriði Indriðason, aðalbókari, indridi@rang.is og í síma 488‐7000

 


Attachments

Arsreikningur Rangarings ytra 2010.pdf