Niðurstaða í útboði verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414 og RIKB 31 0124


Útboð á verðtryggðum og óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKS 21 0414 og RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKS 21 0414:
Alls bárust 28 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.955 m.kr. að nafnverði. 24 tilboðum var tekið fyrir 5.605 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 109,48 (2,70% ávöxtunarkröfu).

RIKB 31 0124:
Alls bárust 24 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.975 m.kr. að nafnverði. 17 tilboðum var tekið fyrir 6.325 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 93,99 (7,07% ávöxtunarkröfu).

 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 3. maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 4. maí 2011.


Attachments

NidurstodurRIKS21RIKB31_110429.pdf