- Heildarvelta var 16,0 milljarðar króna og minnkaði um 2% á milli ára.
- EBITDA var neikvæð um 0,2 milljarða króna en var jákvæð um 0,2 milljarða króna árið á undan.
- EBIT var neikvæð um 1,4 milljarða króna en var neikvæð um 1,2 milljarða á sama tímabili árið áður. Afskriftir voru 1,2 milljarðar króna sem er lækkun um 0,1 milljarð frá fyrra ári.
- Fjármagnskostnaður var 0,4 milljarðar króna samanborið við 0,7 milljarða króna árið áður.
- Tap eftir skatta var 1,1 milljarður króna en tap eftir skatta nam 1,9 milljörðum króna á sama tíma árið 2010.
- Handbært fé og skammtímaverðbréf í lok ársfjórðungsins námu 18,1 milljörðum króna, en námu 13,0 milljörðum í árslok 2010.
- Heildareignir námu 91,4 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall var 30% í lok fyrsta ársfjórðungs 2011, en voru 84,2 milljarðar og 34% í lok árs 2010
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:
„Tap félagsins á fyrsta ársfjórðungi lækkaði á milli ára þrátt fyrir miklar hækkanir á eldsneytisverði. Tapið nam 1,1 milljarði króna samanborið við 1,9 milljarða króna á sama tíma í fyrra. EBITDA var neikvæð um 0,2 milljarða króna en var jákvæð um 0,2 milljarða á síðasta ári. Olíuverð var að meðaltali 42% hærra núna en á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Kostnaðarhækkun samstæðunnar vegna þessa nemur um 0,8 milljörðum. Í ljósi ytri aðstæðna erum við sátt við afkomu ársfjórðungsins.
Framboð í alþjóðlegu farþegaflugi samstæðunnar var aukið um 12% á milli ára og jókst farþegafjöldi um 13%. Farþegaaukning varð á öllum okkar mörkuðum þó mest á Norður-Atlantshafsmarkaðnum um 20%. Sætanýting Icelandair var sú hæsta sem áður hefur mælst á þessu tímabili eða 71%. Bókunarstaða fyrir komandi mánuði er góð og stefnir í metfjölgun ferðamanna til Íslands á árinu. Gengisþróun Evru og dollars hefur verið félaginu hagstæð og vegur það að hluta upp á móti hærra eldsneytisverði. EBITDA spá félagsins fyrir árið í heild er því óbreytt 9,5 milljarðar.
Félagið er fjárhagslega sterkt. Handbært fé og skammtímaverðbréf í lok fjórðungsins námu um 18 milljörðum sem er hækkun um ríflega 5,1 milljarð frá upphafi árs. Eigið fé nemur 29,4 milljörðum og eiginfjárhlutfall er 30%.“
Frekari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801