Standard & Poor‘s lækkar lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar


Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar í BB úr BB+ í kjölfar þess að fyrirtækið lækkaði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir innlendar skuldbindingar úr BBB í BBB- í gær. Horfurnar eru neikvæðar hjá báðum aðilum.

Hinn 17. maí síðastliðinn var lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir innlendar skuldbindingar lækkuð um einn flokk í BBB-. Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar tekur mið af breytingum á lánshæfiseinkunnum ríkissjóðs en einkunn Landsvirkjunar hefur nú verið lækkuð um einn flokk í BB úr BB+. Á sama tíma voru lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar teknar af athugunarlista og eru áfram með neikvæðum horfum sem fyrr segir.

Að mati Landsvirkjunar hefur þessi breyting ekki í för með sér áhrif á núverandi skuldbindingar fyrirtækisins. Rekstur Landsvirkjunar er stöðugur og allar helstu kennitölur og sjóðstreymi hafa batnað á undanförnum mánuðum.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs

s. 515 9000    sara@lv.is