Deloitte hf. verður viðurkenndur ráðgjafi (CA) á First North Iceland


NASDAQ OMX Iceland hf. hefur samþykkt að Deloitte hf. verði viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Hlutverk CA felst í að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru til viðskipta á markaðnum. CA fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North.

Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla ákveðin skilyrði.  Þau helstu eru að CA þarf að:

- vera lögaðili

- hafa nægilega marga starfsmenn

- tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri reynslu í
  fjármálaþjónustu við fyrirtæki

- setja innri reglur um viðskipti með hluti í félögum sem þiggja þjónustu
  Certified Adviser

- hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga

 

First North Iceland býður Deloitte hf. velkomið til starfa sem Certified Adviser.