Tilkynning um nýjan stjórnarmann


Hluthafafundur rekstrarfélagsins Stefnis hf., var haldinn miðvikudaginn 22. júní 2011. Þær breytingar áttu sér stað á stjórn félagsins að Kristján Jóhannsson tók sæti sem aðalmaður í stjórn félagsins í stað Hermanns Jónassonar, sem hefur sagt sig úr stjórn þess. 

Meirihluti stjórnarmanna er óháður Arion banka hf., móðurfélagi Stefnis hf.

Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem rekur innlenda og alþjóðlega verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði fyrir einstaklinga og fagfjárfesta. Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf., gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010.

Nánari upplýsingar veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 444 7464 og floki.halldorsson@stefnir.com