Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2011


Reykjavík, 2011-06-23 17:00 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur var haldinn í dag og á honum voru lagðar fram Ársskýrsla OR 2010 og Umhverfisskýrsla OR 2010. Skýrslurnar eru aðgengilegar á vef Orkuveitu Reykjavíkur ásamt skýrslum fyrri ára á slóðunum http://www.or.is/UmOR/Arsskyrslur og http://www.or.is/Umhverfiogfraedsla/Umhverfismal/Umhverfisskyrslur.

Kjöri stjórnar var lýst á fundinum og eru aðalmenn, kjörnir til eins árs þau Haraldur Flosi Tryggvason formaður, Brynhildur Davíðsdóttir varaformaður, Gylfi Magnússon, Kjartan Magnússon, Sóley Tómasdóttir og Hrönn Ríkharðsdóttir.

Á fundinum var einnig samþykkt tillaga borgarstjórans í Reykjavík um að fram fari óháð úttekt á stöðu og rekstri Orkuveitu Reykjavíkur með það fyrir augum að draga fram með skýrum hætti orsakir þeirrar fjárhagslegu stöðu sem fyrirtækið hefur ratað í. Til úttektarinnar voru fengin þau Ása Ólafsdóttir hrl., Margrét Pétursdóttir löggiltur endurskoðandi og Ómar H Kristmundsson prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ.

Eftir aðalfundinn var haldinn opinn ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur. Í viðhengjum eru glærukynningar fluttar á fundinum auk ávarps borgarstjórans í Reykjavík, Jóns Gnarr.


Attachments