Matsfyrirtækið Moodys gefur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) lánshæfiseinkunnina B1 með neikvæðum horfum, sbr. meðfylgjandi tilkynningu. Það er lækkun frá fyrra mati sem var Ba1. Breytingin hefur ekki áhrif á rekstur eða skuldastöðu OR. Fyrirtækið og eigendur þess kynntu í mars 2011 aðgerðaáætlun til áranna 2011-2016 sem miðar að því að OR þurfi ekki að leita erlendrar fjármögnunar á því tímabili.