Útgáfa á RIKS 30 0701 í tengslum við losun gjaldeyrishafta


Með vísan í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands um kaup á evrum gegn greiðslu í ríkisbréfum í tengslum við áætlun um losun gjaldeyrishafta sem birt var í dag 2. ágúst, munu Lánamál ríkisins gefa út ríkisbréf í flokki RIKS 30 0701. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðsins er að finna í útboðskilmálum sem fylgja ofangreindri fréttatilkynningu Seðlabankans.