Jón Gnarr, borgarstjóri, lagði fram frumvarp að þriggja ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2012-2014 á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag.
Frumvarpið byggir á endurskoðaðri fjárhagsáætlun A-hluta fyrir árið 2011 og endurskoðaðri áætlun Orkuveitu Reykjavíkur. Við gerð þess er í öllum aðalatriðum fylgt sömu aðferðafræði og viðhöfð hefur verið við tvær síðustu þriggja ára áætlanir.
Nýir kjarasamningar og margvíslegar breytingar á tekju- og útgjaldahlið borgarsjóðs kallar á mikla vinnu við endurskoðun á forgangsröðun fjármuna sem unnið er að um þessar mundir. Niðurstaða þeirrar vinnu mun birtast við framlagningu á frumvarpi að fjárhagsáætlun 2012 og fimm ára áætlun 2012-2016.
Frumvarpið má nálgast á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is. Síðari umræða og afgreiðsla þriggja ára áætlunar fer fram í borgarstjórn 17. ágúst 2011.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri
Frumvarpið fylgir með í viðhengi ásamt fréttatilkynningu