Source: Icelandair Group hf.

Sterkur innri vöxtur - 27% aukning farþega í millilandaflugi

 Afkoma á öðrum ársfjórðungi 2011

  • Heildarvelta var 25,0 milljarðar króna og jókst um 14% frá sama tíma í fyrra.
  • Þegar tekið er tillit til félaga sem fóru út úr samstæðunni um síðustu áramót er veltuaukningin 21%.
  • EBITDA var 2,1 milljarður króna og stóð í stað á milli ára. EBITDA af sambærilegum rekstri 2010 nam 1,9 milljarði króna.
  • EBITDA-hlutfall var 8,3% en var 9,8% á sama tímabili í fyrra.
  • Olíuverð var að meðaltali 47% hærra en á síðasta ári og kostnaðarhækkun vegna þessa metin á 1,7 milljarða króna.
  • Afskriftir voru 1,5 milljarðar króna.
  • EBITDAR-hlutfall var 15,5% en var 20,3% á sama tímabili í fyrra.
  • Fjármagnskostnaður var 0,1 milljarður króna samanborið við 1,1 milljarð króna árið áður.
  • Hagnaður eftir skatta var 0,4 milljarðar króna en tapið var 0,2 milljarðar króna á sama tíma í fyrra.

 

Afkoma á fyrstu 6 mánuðum 2011

  • Heildarvelta var 41,5 milljarðar króna og jókst um 8% á milli ára.
  • Þegar tekið er tillit til félaga sem fóru út úr samstæðunni um áramót er veltuaukningin 15%.
  • EBITDA var 1,9 milljarðar króna og EBITDA hlutfallið 4,6% en var 2,3 milljarðar króna og 6,1% árið á undan. EBITDA af sambærilegum rekstri 2010 nam 1,8 milljarði króna.
  • EBITDAR-hlutfall var 13,3% en var 17,4% á sama tímabili í fyrra.
  • Fjármagnskostnaður var 0,6 milljarðar króna samanborið við 1,8 milljarða króna á sama tímabili í fyrra.
  • Handbært fé frá rekstri nam 13,8 milljörðum króna samanborið við 9,4 milljarða á fyrstu sex mánuðum árið áður.
  • Handbært fé og markaðsverðbréf 30. júní námu 18,4 milljörðum króna, en 7,5 milljörðum á sama tíma í fyrra.
  • Heildareignir námu 94,6 milljörðum í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall var 29,1% í lok tímabilsins, en var 13,4% á sama tíma í fyrra.

  

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

Sterkur innri vöxtur einkenndi annan ársfjórðung, en framboðsaukning í millilandaflugi félagsins nam 25% á milli ára. Farþegaaukning á sama tíma var 27%. Velta Loftleiða jókst um 28% og Flugfélag Íslands jók framboð sitt til Grænlands og nam farþegaaukningin á tímabilinu 14%. Þá opnaði samstæðan nýtt hótel á Akureyri.

Hátt olíuverð, eldgos og aðgerðir vegna kjaradeilna voru áskoranir sem við þurftum að takast á viðKostnaður og tekjutap vegna eldgossins er talið nema um 300 milljónum króna í fjórðungnum og yfirvinnubann flugmanna kostaði félagið sambærilega fjárhæð. Aðgerðir þeirra komu á versta tíma þar sem þjálfun nýrra flugmanna hafði seinkað vegna eldgossins. Olíuverð var að meðaltali 47% hærra en á sama tíma í fyrra og kostnaðarhækkun vegna þess er um 1,7 milljarðar króna. Í ljósi þessa erum við mjög sátt við afkomu félagsins og ljóst að undirliggjandi rekstur er traustur.

Fjárhagsleg staða félagsins er sterk. Eiginfjárhlutfall er 29% og handbært fé og markaðsverðbréf í lok júní námu um 18,4 milljörðum króna. Bókunar- og verkefnastaða fyrir komandi mánuði er góð og er EBITDA spá fyrir árið í heild óbreytt eða 9,5 milljarðar króna.“

 

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801 

 

Attachments: