Afskráning Markaðsbréfa Landsbankans - meðallangra


Stjórn Landsvaka hf., rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingasjóða Landsbankans, hefur tekið ákvörðun um sameiningu verðbréfasjóðsins Markaðsbréf Landsbankans – meðallöng við verðbréfasjóðinn Sparibréf – meðallöng.  Síðarnefndi sjóðurinn hefur eingöngu heimild til að fjárfesta í íslenskum ríkisskuldabréfum og kröfum á íslenska ríkið og hefur sama leyfilega meðallíftíma og Markaðsbréf Landsbankans – meðallöng.  Þegar ákvörðun um sameiningu sjóðanna var tekin voru einungis ríkisskuldabréf/kröfur með ríkisábyrgð í verðbréfasjóðnum Markaðsbréf Landsbankans – meðallöng.  Sameiningin var gerð með hagsmuni hlutdeildarskírteinishafa að leiðarljósi.  Tilgangur rekstrarfélagsins með þessu var að ná fram auknu gagnsæi og auðvelda fjárfestum að gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem felst í fjárfestingum í sjóðum sem eru í stýringu hjá Landsvaka.

Hlutdeildarskírteinishafar sjóðsins fengu bréf þann 26. apríl síðastliðinn þar sem þeim var tilkynnt um sameininguna.  Sameiningin fór fram þann 20. maí síðastliðinn með flutningi allra verðbréfa í eigu Markaðsbréfa Landsbankans –meðallangra í Sparibréf Landsbankans – meðallöng. Eign hlutdeildarskírteinishafa fluttist sjálfkrafa yfir í Sparibréf Landsbankans – meðallöng og enginn kostnaður féll á  hlutdeildarskírteinishafa við þessa aðgerð.

Beiðni um afskráningu sjóðsins Markaðsbréf Landsbankans – meðallöng hefur verið send Kauphöll.

Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Landsvaka hf. Ari Skúlason í síma 410-7406