Árshlutareikningur Farice ehf. fyrir janúar til júní 2011


Árshlutareikningur Farice ehf fyrir janúar til júní 2011, var samþykktur af stjórn félagsins í dag.

Helstu niðurstöður, (fjárhæðir eru í evrum):
 

  • Rekstrartekjur voru 3,5 milljónir ( 6m 2010: 3,3 milljónir)
  • Rekstrar- og stjórnunarkostnaður nam 2,8 milljónum (6m 2010: 2,7 milljónir)
  • Tap tímabilsins, fyrir fjárhagsliði, var 3,2 milljónir (6m 2010: 3,3 milljónir)

 

Rekstrarumhverfi og fjárhagur

Fjárhagslegri endurskipulagningu Farice ehf er nú lokið. Á hluthafafundum í mars og maí 2011 var samþykkt að auka hlutafé félagsins um 8 milljónir evra, sem íslenska ríkið og Landsvirkjun hafa skráð sig fyrir. Greiðslu aukins hlutafjár verður lokið í byrjun september, og verður hlutafé félagsins þá 83,5 millj. evra, og eiginfjárhlutfall verður 50,3%.

Endurskipulagður fjárhagur Farice ehf á að tryggja að félagið geti staðið undir þeim rekstri sem áætlaður er næstu árin. Tekjur félagsins eru annars vegar af viðskiptasamningum við almenn fjarskiptafélög og hins vegar af samningum við gagnaveraiðnaðinn. Árleg aukning fjarskiptaumferðar almennra fjarskiptafélaga er veruleg, en í áætlunum félagsins er þó gert ráð fyrir að meginvöxturinn verði á sviði þjónustu við gagnaver og skyldan iðnað. Þá skipta nýir samningar við lánardrottna um endurgreiðslur langtímalána afar miklu máli hvað varðar framtíð Farice ehf.

 

Frekari upplýsingar veitir:
Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sími: 893 4840
Netfang: gg@farice.is


Attachments