Árshlutauppgjör Kópavogsbæjar janúar - júní 2011


Meðfylgjandi er óendurskoðað og ókannað uppgjör Kópavogsbæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2011. Uppgjörið er gert í samræmi við lög og reglugerðir en þó þannig að ekki eru samdar sérstakar skýringar með árshlutauppgjörinu aðrar en eru í meðfylgjandi greinargerð.  Uppgjörið er notað innanhúss til að athuga hvernig rekstrarkostnaður hefur þróast og myndar það grunn að útkomuspá ársins 2011 og fjárhagsáætlun ársins 2012.

Aðal frávikið frá áætlun ársins 2011 liggur í fjármagnsliðum. Er þar aðallega um að ræða reiknað gengistap vegna erlendra lána  (um 780 m.kr.), en í  áætlunum bæjarins er ekki áætlað fyrir gengisbreytingum. Þá urðu reiknaðar verðbætur meiri en áætlað var á fyrri árshelmingi, eða um 690 m.kr. hærri. Samkvæmt uppgjörinu eru heildartekjur heldur hærri en áætlað hafði verið sem og rekstrarkostnaður. Laun eru hærri en áætlað var, m.a. vegna kjarasamninga sem ekki var sérstaklega áætlað fyrir.  

Afkoma samstæðu fyrir fjármagnsliði, breytingu lífeyrisskuldbindinga og afskriftir, nemur alls 1.809 m.kr. en í áætlun var gert ráð fyrir 1.554 m.kr. Rekstrarniðurstaða er hinsvegar -1.161,9 m.kr. en áætlað var að hún yrði 242,4 m.kr á miðju ári.

Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í samfélaginu og með hliðsjón af samfélagslegum skyldum bæjarfélagsins, einkum þegar hart er í ári, hefur almennur rekstur bæjarsjóðs í stórum dráttum verið í takti við áætlun, sem unnin var í lok síðasta árs.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar,
í síma: 696 066


Attachments