Íbúðalánasjóður - Vaxtaákvörðun


Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 með síðari breytingum og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 30. september s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa eru 3,54%.

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,45%, vegna útlánaáhættu 0,45% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.

Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðsins á íbúðabréfum og í samræmi við ofangreinda breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir og verði því sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,40% og 4,90% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Þessi ákvörðun tekur gildi í dag, 3. október 2011.